Skilmálar þjónustu

Á vefsíðu Frystihússins geta notendur stofnað aðgang þar sem hægt er að halda utan um allar pantanir sem gerðar eru í gegnum vefsíðuna. Velji notendur að stofna slíkan aðgang vinnur Frystihúsið með upplýsingar um nafn, netfang og farsímanúmer, auk kennitölu, heimilisfangs og lands velji notendur að skrá slíkar upplýsingar. Þá vinnur Frystihúsið með upplýsingar um notendanafn og lykilorð notenda, ásamt upplýsingum um kaupsögu, þ.e. á hvaða viðburði notandi hefur keypt aðgang að eða hvaða vörur notandi hefur keypt (bókunarnúmer, heiti viðburðar og dagsetning ásamt afrit af kvittun). Tilgangurinn með vinnslunni er að veita notanda yfirlit yfir allar pantanir á einum stað og byggir vinnslan á samningi aðila.

Frystihúsið vinnur með upplýsingar er tengjast aðgangi notanda á meðan notandi hefur virkan aðgang. Ákveði notandi að eyða aðgangi sínum eyðir Tix öllum þeim upplýsingum sem tengjast viðkomandi aðgangi. Til áréttingar skal tekið fram að slík eyðing hefur þó ekki áhrif á þær persónuupplýsingar sem Frystihúsið vinnur sem vinnsluaðili fyrir hönd viðburðarhaldara, sbr. grein 1 í stefnu þessari.

  • Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu viðburðar eða full endurgreiðsla á miða.

1. Almennt

Víkin fagra ehf(hér eftir kallað Frystihúsið), rekur miðasölukerfi fyrir sölu og umsýslu aðgöngumiða á ýmis konar viðburði og vörur þeim tengdum. Frystihúsið notar kerfið til að selja aðgöngumiða á viðburði og tengdar vörur.

Í tengslum við notkun á miðasölukerfinu á sér stað vinnsla persónuupplýsinga, þ.m.t. um kaupendur aðgöngumiða og tengdra vara sem nota kerfið. Í tengslum við slíka vinnslu persónuupplýsinga koma viðburðahaldarar fram sem svokallaðir ábyrgðaraðilar í skilningi persónuverndarlaga, þ.e. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, en Frystihúsið sem svokallaður vinnsluaðili. Sem vinnsluaðili vinnur Frystihúsið persónuupplýsingar kaupenda samkvæmt fyrirmælum viðburðarhaldara og hafa aðilar gert með sér sérstakan vinnslusamning sem gildir um þá vinnslu. Kaupendur eru hvattir til þess að kynna sér persónuverndarstefnu viðburðarhaldara þar sem kveðið er á um þá vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað í tengslum við notkun á Frystihúsið miðasölukerfinu.

Í persónuverndarstefnu þessari er kveðið á um þá vinnslu persónuupplýsinga sem Frystihúsið telst ábyrgðaraðili að. Vakni spurningar í tengslum við stefnu þessa eru einstaklingar hvattir til þess að setja sig í samband við Tix, sbr. grein 6 í stefnu þessari.

2. Vinnsla Tix á persónuupplýsingum

Velji notandi að skrá sig á póstlista Frystihússins vinnur Frystihúsið með upplýsingar um nafn og netfang viðkomandi. Vinnslan byggir á samþykki og getur notandi hvenær sem er afskráð sig af póstlista Frystihússins, þ.m.t. með því að smella á afskráningartengil í tölvupóstum sem berast frá Frystihúsinu.

3. Réttindi á grundvelldi persónuverndarlaga

Þeir einstaklingar sem Frystihúsið vinnur persónuupplýsingar um eiga rétt á að fá upplýsingar um það hvaða persónuupplýsingar unnið er með og hvernig vinnslunni er hagað. Þá kunna einstaklingarnir að eiga rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður geta einstaklingar jafnframt óskað eftir því að Frystihúsið sendi afrit af upplýsingum sem viðkomandi aðili hefur látið Frystihúsinu í té eða stafa frá viðkomandi með rafrænum hætti til þriðja aðila.

Ef einstaklingar vilja láta eyða þeim persónuupplýsingum sem Frystihúsið vinnur með sem ábyrgðaraðili kann slíkur réttur jafnframt að vera til staðar, s.s. þegar varðveisla upplýsinganna er ekki lengur nauðsynleg miðað við tilgang vinnslunnar eða í þeim tilvikum er einstaklingur afturkallar samþykki sitt og önnur heimild liggur ekki til grundvallar vinnslunni. Þá er jafnframt hægt að óska eftir því að vinnsla verði takmörkuð og í þeim tilvikum er vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum Frystihússins geta einstaklingar andmælt vinnslunni.

Ef vinnsla byggir á samþykki getur einstaklingur hvenær sem er afturkallað samþykkið, s.s. í tengslum við skráningu á póstlista Frystihússins.

Framangreind réttindi eru þó ekki fortakslaus og þannig kunna lög að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur Frystihúsið jafnframt þurft að hafna beiðni vegna betri réttar þriðja aðila. Ef upp koma aðstæður þar sem að Frystihúsið getur ekki orðið við beiðni mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað.

Ef einstaklingur hefur athugasemdir við vinnslu Frystihússins á persónuupplýsingum sínum eða hvernig félagið hefur svarað beiðni viðkomandi skal á það bent að hægt er að senda erindi til Persónuverndar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu stofnunarinnar, personuvernd.is

Fái Frystihúsið beiðni er lýtur að vinnslu þar sem viðburðahaldarar koma fram sem ábyrgðaraðilar vinnslu, sbr. tilgreiningu í grein 1 í þessari stefnu, mun Tix benda einstaklingnum að leita til viðkomandi viðburðarhaldara.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Frystihúsinu á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Aðrar upplýsingar 

Netfang: vinnsla.godaborg@gmail.com

Símanúmer: 848-1512

Sólvellir 21b

760 Breiðdalsvík

Kt: 430621-1730

Vsk nr 

Banka upplýsingar 0133-26-3301

 

Öryggi

Það er öruggt að versla í vefverslun frystihusid.is Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila