Við bjóðum upp á viðburði af öllu tagi

Tónleikar, ráðstefnur, jólahlaðborð, þorrablót, afmæli, brúðkaupsveislur

Viðburðir á næstunni

ALVÖRU Sveitaball!

Er ekki kominn tími á alvöru sveitaball og tjútta pínu?Stuðhljómsveitin Ástarpungarnir ætla að koma og skemmta okkur langt fram á nótt.

Húsið opnar kl 22:00

Forsölu lokið

Miðaverð við hurð er 3.000kr

Allskonar tilboð á barnum

Miðasala við hurð

Salurinn okkar

1 of 4

Eldri tónleikar

1 of 5

Fleira áhugavert á Breiðdalsvík

Goðaborg harðfiskur

Á Breiðdalsvík er framleiddur úrvals harðfiskur sem unnin er úr eigin afla útgerðarinnar hér í bænum. Seldur víða um land í verslunum og einnig beint af vefsíðu Goðaborgar.

Heimsækja vefsíðu

Hótel Breiðdalsvík

Hótel Breiðdalsvík var opnað árið 1983 og er umvafið mikilfenglegum fjöllum og svörtum söndum. Hótelið er friðsæl vin mitt í hinni hráu fegurð Breiðdalsvíkur á Austfjörðum. Á hótelinu eru 37 vel búin herbergi, auk huggulegrar setustofu með arni og bókasafni, finnskri sauna og veitingastaðar. Veitingastaðurinn býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins.

Heimsækja vefsíðu

Beljandi brugghús

Á Breiðdalsvík er rekið handverksbrugghúsið og barinn Beljandi. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 2017 og býður alla jafna upp á 4-5 tegundir af bjór. Hann er að mestu seldur á staðnum, en einnig á nokkrum góðum stöðum á Austfjörðum á sumrin og má líka finna hann í Reykjavík og á Akureyri stöku sinnum. Barinn á Breiðdalsvík er opin öll kvöld yfir sumarið en lokað er að mestu yfir veturinn.

Beljandi á Facebook

Kaupfjelagið

Ferðastu aftur í tímann með því að heimsækja Kaupfjelagið á Breiðdalsvík. Hingað hafa heimamenn og gestir sótt þjónustu í rúmlega 60 ár og í dag er bæði kaffihús og verslun í Kaupfjelaginu. Í hillinum er að finna gamlar vöru sem voru til sölu í Kaupfjelaginu á upphafsárum þess.

Kaupfjelagið á Facebook

Tinna Adventure

Tinna býður upp á fjölbreyttar dagsferðir um Austurland. Allt frá stuttum ferðum um nágrennið að sérsniðnum óskum hvers og eins

Heimsækja vefsíðu